Logo
Blaðið /
Fiskur á disk
Fiskur hefur ávalt verið fastur liður á matborðum landsmanna. Þótt matarvenjur hafi breyst mikið á undanförnum árum heldur fiskurinn áfram að skipa mikilvægan sess í íslenskri matarmenningu. En hversu mikið borðum við í raun af fiski í dag og hvaða tegundir eru vinsælastar? Guðbjörg Glóð Logadóttir, eigandi Fylgifiska, segir frá fiskneyslu Íslendinga og því hvernig smekkur landsmanna hefur þróast.
Fiskur á disk image

Guðbjörg Glóð hefur rekið fiskverslunina Fylgifiska í yfir tvo áratugi. Frá upphafi hefur markmiðið verið að auka fjölbreytni í fiskneyslu og gera fólki auðveldara að njóta góðra fiskrétta í dagsins önn. Guðbjörg segir að fiskneysla Íslendinga hafi verið meiri hér áður fyrr þegar fiskurinn var ódýrari, en öllu jöfnu séu Íslendingar duglegir að borða fisk og taki oft tímabil þar sem það borðar mikinn fisk. 


Lítið selt af ýsu

„Margir kannast við að vilja borða meiri fisk og þá er auðvelt að koma til okkar, því margir veigra sér við að elda fiskinn. En fiskur er mjög fljóteldaður og þægilegt hráefni,“ segir Guðbjörg Glóð. Hún segir að áður hafi fólk fyrst og fremst keypt ýsu en það sé breytt, nú sé þessu öfugt farið og minnst sé selt af ýsu. „Við seljum mikið af þorski, löngu og laxi. Vinsælasti rétturinn okkar er til dæmis hnetulanga,“ segir hún og bætir við að fólk sé hætt að spá í hvaða fisktegund það sé að borða heldur hugsi frekar út í hvernig fiskurinn er kryddaður og hvernig á að elda hann.  

Landlæg beinafóbía

Guðbjörg segir að Íslendingar eigi oft mjög erfitt með að sætta sig við að finna bein í fiski. „Það virðist vera svo að fólki finnist eins og það sé eitthvað utan að komandi í fisknum ef það finnst bein, þó að fiskur sé beindýr,“ segir hún og bendir á að aðrar þjóðir eldi oft heilan fisk með roði, beinum og öllu og finnist það æðislegt. „Íslendingar eru með króníska, landlæga beinafóbíu!“

Verslunin Fylgifiskar.

Mikilvægt að elda fiskinn stutt

Guðbjörg segir mikilvægt er að elda fiskinn ekki of mikið oftast duga fimmtán mínútur í ofni, tvær til þrjár mínútur á pönnu. „Þetta er alltaf styttri tími en allir halda,“ segir hún og bætir við að það sé auðvelt að komast upp á lagið með að elda fisk. „Það er auðvelt að elda fiskinn og svo er hann léttur í magann og því er fiskur sérstaklega góður sem kvöldmáltíð því þú ferð ekki yfirfullur að sofa.“