Blaðið /
Gagnvirkt siglingakerfi sem eykur öryggi á sjó
Hefring Marine er íslenskt fyrirtæki sem hefur hannað leiðbeinandi siglingakerfi fyrir báta og smærri skip. Kerfið veitir m.a. leiðbeiningar varðandi hámarkshraða og tekur tillit til sjó- og veðurlags í rauntíma á gagnvirkan hátt.

Kerfið hefur margvíslegan ávinning fyrir sjófarendur eins og t.d. að draga úr slysahættu og getur minnkað eldsneytis- og kolefnislosun um allt að 20%. Björn Jónsson, einn af stofnendum fyrirtækisins, segir hér frá starfsemi Hefring, hvernig fyrirtækið varð til og spennandi tímum fram undan.