
Fyrirtækið, sem var stofnað árið 2023, nýtir gervigreind, gervitunglagögn og umfangsmiklar upplýsingar úr sjávarútvegi til að greina hvar líklegast er að fisk sé að finna hverju sinni. „Ef við blöndum þessum upplýsingum saman er hægt að þróa módel sem þekkir veðuraðstæður og hafaðstæður, þekkir hvernig hafið hefur breyst og hvernig tiltekin fisktegund hefur hagað sér þegar hafið hefur verið með ákveðnu móti. Þetta er nýja þekkingin sem við erum að bjóða upp á,“ segir Baldur S. Blöndal rekstrarstjóri Greenfish.
Markmiðið er að stytta leitartíma skipa, draga úr eldsneytisnotkun og auka hagkvæmni veiða, án þess að skerða gæði aflans. Á skömmum tíma hefur GreenFish vakið athygli bæði hérlendis og erlendis fyrir nýstárlega nálgun sína og sýnt hvernig hátækni og sjávarútvegur geta unnið saman að sjálfbærari og skilvirkari framtíð.
„Við erum mjög ungt fyrirtæki og fyrsta varan okkar var gefin út sumarið 2025. Núna erum við með um 60 módel í þróun og kúnna í öllum heimsálfum þannig að þetta er búið að þróast mjög hratt. Við ætlum bara að halda áfram að vaxa,“ segir hann og bætir við að Greenfish fái ítrekað beiðnir um að finna alls konar lausnir. „Við erum að einbeita okkur núna að þessum veiðispám en það eru allskonar tækifæri þarna úti sem væri mjög spennandi að fylgja eftir.“
