Logo
Blaðið /
Hafsvæðastjórnun framtíðarinnar
Nýtt og spennandi stjórnunarnám í hafsvæðastjórnun fer af stað í haust í Háskólanum á Bifröst og er þróun þess samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands, Háskólans á Bifröst og Tækniskólans. Í náminu er m.a. lögð áhersla á leiðtogafræði, hafsvæðastjórnun og leit og björgun á sjó. Hugmyndin að baki samvinnu þessa aðila er að skapa sterkan grunn fyrir hafsvæðastjórnun framtíðarinnar og efla tengsl menntunar og atvinnulífs. Landhelgisgæslan fagnar 100 ára afmæli í ár og því er vel við hæfi að stíga næstu skref í átt að enn öflugri og nútímalegri gæslu á hafi.
Hafsvæðastjórnun framtíðarinnar image

„Stýrimannaskólinn og Tækniskólinn hafa verið með varðskipadeild sem var eingöngu ætluð fyrir skipsstjórnarfólk sem sótti sér æðstu réttindi skipsstjórnar. Þetta nám var haldið á fimm til tíu ára fresti,“ segir Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar hjá Landhelgisgæslunni. „Við ákváðum að útvíkka þetta aðeins. Námið er komið á háskólastig þar sem D-réttindi skipsstjórnar jafngilda stúdentsprófi. Við hófum samtal við Bifröst og var ákveðið að opna námið fyrir fleirum en bara skipsstjórnarfólki. Þarna eru fög sem varða landhelgisgæslu, siglingaröryggi, leiðtogafærni, ákvarðanatökur, leit og björgun, varnarmál og fleira. Við viljum fá fjölbreyttari hóp fólks til liðs við okkur sem vill starfa í þessum bransa.“ 

Ljósmynd: lhg.is

Markmiðið með leiðtoganámi í hafgæslu er að mæta vaxandi þörfum atvinnulífsins fyrir vel menntaða stjórnendur og skapa ný tækifæri til starfsþróunar fyrir fólk í sjávarútvegstengdum greinum. Í náminu er lögð áhersla á hagnýta og fjölbreytta þekkingu á leiðtogafræðum, öryggismálum og siglingafræði og sérstök áhersla á leit og björgun á sjó. Nemendur fá tækifæri til að efla leiðtogafærni sína og undirbúa sig fyrir krefjandi störf á íslensku hafsvæði í framtíðinni. 

„Undanfarin ár hefur orðið sú þróun að það er ekki bara skipsstjórnarfólk sem starfar í lykilstörfum hjá okkur, heldur alls konar sérfræðingar með fjölbreytta menntun. Þannig er þróunin líka úti í heimi. Með þessu námi viljum við auka hæfni okkar fólks og þeirra sem hafa áhuga á þessum málaflokki,“ segir Auðunn. 

Nýjar áherslur og breytt heimsmynd

Auðunn segir störf Landhelgisgæslunnar hafa breyst töluvert síðustu áratugina. „Það er ákall um að fá fólk með fjölbreyttari bakgrunn í fagið. Verkefni Landhelgisgæslunnar eru alltaf að verða fjölbreyttari, það eru nýjar áherslur og breytt heimsmynd. Nú er t.d. meiri áhersla á alþjóðamál. Við tökum þátt í landamæraeftirliti fyrir Evrópusambandið, við komum að sjúkraflutningum, varnartengdum verkefnum, almannavörnum og mengunarmálum. Þetta er miklu flóknara starfsumhverfi en það var fyrir fimmtán til tuttugu árum síðan. Það kallar á að hjá okkur starfi fjölbreyttari flóra af fólki með fjölbreyttari bakgrunn og víðari þekkingu.“ 

Námið er fyrir einstaklinga með D-réttindi í skipsstjórn og þá sem vilja dýpka þekkingu sína á haf- og öryggismálum og uppfylla inngönguskilyrði í háskólanám. Þeir nemendur sem hafa lokið námi í skipsstjórn við Tækniskólann og uppfylla kröfur um siglingatíma geta, að námi loknu, sótt um skipherraréttindi.

„Það eru nokkur ár síðan við byrjuðum að leita eftir samstarfi við háskóla en svo small þetta samstarf saman á afmælisárinu,“ segir Auðunn og bætir við að umsóknarfresturinn sé til 1.júlí, sem er afmælisdagur Landhelgisgæslunnar. „Við hvetjum fólk sem hefur áhuga á björgunarmálum til að sækja um, hvort sem það hefur áhuga á að starfa hjá okkur í gæslunni eða hjá öðrum fyrirtækjum, stofnunum eða félagasamtökum. Markmiðið er að bjóða upp á flott og metnaðarfullt nám og svo á það auðvitað eftir að þróast enn meira þegar reynslan kemur,“ bætir hann við að lokum. 

Varðskipið Freyja

100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar

Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu í ár, en gæslan var formlega stofnuð þann 1. júlí 1926. Afmælið markar stór tímamót í sögu einnar mikilvægustu öryggisstofnunar landsins. Í tilefni af 100 ára afmælinu hefur Landhelgisgæslan sett upp skemmtilega tímalínu á heimasíðu gæslunnar þar sem sagan lifnar við. Þar má kafa ofan í helstu viðburði liðinnar aldar, skoða varðskip, flugvélar og þyrlur sem hafa þjónað þjóðinni í gegnum tíðina, skoða þróun fiskveiðilögsögunnar og lesa magnað­ar frásagnir af björgunarafrekum á sjó.

Björgun í sjó á sjómannadaginn

Landhelgisgæslan og Björgunarsveitin Ársæll mæta að venju til leiks á sjómannadaginn með sýningu á björgun úr sjó, þar sem hægt er að sjá hvernig þyrlusveitin vinnur þegar kemur að því að bjarga mannslífum á hafi.