Logo
Blaðið /
Minnisvarðar sjómanna
Halldór Guðmundsson og fjölskylda hans eiga einstaka tengingu við leiði óþekkta sjómannsins við Fossvogskirkju. Á hverjum sjómannadegi síðan 1948 hafa systkini og fjölskylda Halldórs tekið þátt í þeirri fallegu hefð að leggja blómsveig á leiði óþekkta sjómannsins.
Minnisvarðar sjómanna image

Minnisvarðinn, eða vitinn, var fyrst reistur árið 1938 inni í Fossvogskirkjugarði til að minnast sjómanna sem fórust á sjó og skapaðist upp frá því sú hefð að leggja þar blómsveig á sjómannadaginn til að heiðra minningu sjómanna.

Um fimmtíu árum síðar var vitinn endurgerður og færður að Fossvogskirkju. Halldór, sem er arkitekt og einn eigenda arkitektastofunnar THG, fékk það hlutverk að gera teikningar og skipuleggja umhverfi hans, en frumteikningu Ríkharðs Jónssonar var fylgt að nær öllu leiti. Árið 1996 fékk Halldór og samstarfsfólk hans hjá THG það hlutverk að reisa Minningaröldurnar sem er þjóðarminnisvarði um drukknaða sjómenn.