Logo
Blaðið /
Samstarf byggt á trausti og vináttu
Halldór Guðmundsson er sjómannssonur, en faðir hans Guðmundur Helgi Oddsson var einn af eldhugum Sjómanndagsráðs og gegndi þar hlutverki gjaldkera. Halldór lærði arkitektúr í Kaupmannahöfn og byrjaði snemma að leiða hugann að öldrunarmálum en lokaverkefni hans í arkitektúr árið 1976 var að hanna íbúðir fyrir aldraða á Sjálandi í Danmörku. Hér segir Halldór frá áralöngu samstarfi hans við Sjómannadagsráð og Hrafnistu og hvernig hugmyndir um uppbyggingu hafa fengið að vaxa og þróast. 
Samstarf byggt á trausti og vináttu image


Halldór er arkitekt og framkvæmdastjóri arkitektastofunnar THG og hefur í áratugi tekið þátt í uppbyggingu Sjómannadagsráðs á húsnæði og þjónustu fyrir aldraða. Það má segja að starfsferill hans hafi að stórum hluta farið í byggingu hjúkrunarheimila Hrafnistu og DAS íbúða.