
Glænýr liður á skemmtidagskrá sjómannadagsins í ár er Fjölskylduhlaup TM þar sem fjölskyldur geta hlaupið saman í skemmtilegri hafnarstemningu. Hlaupið hefst kl 10.00 og Latabæjargengið hitar þátttakendur upp á bryggjunni hjá Brim áður en lagt er af stað í skemmtilegan 1,7 kílómetra hring um Grandann.
Landhelgisgæslan býður gestum að stíga um borð í varðskipið Freyju og upplifa einstaka sjóferð beint frá bakkanum við Brim. Fyrsta sigling hefst klukkan 11 og verður siglt reglulega yfir daginn. Koddaslagurinn sívinsæli snýr aftur af fullum krafti og í ár eru það karlarnir sem etja kappi á slánni yfir höfninni. Þá sýnir Landhelgisgæslan einnig björgun úr sjó sem vekur alltaf mikla athygli gesta.

Á Grandagarðinum verða Furðufiskarnir og Bryggjusprellið á sínum stað og þar geta börn og fjölskyldur tekið þátt í alls kyns fjöri og leikjum. Brim heldur svo uppi góðri stemningu með heitri og bragðgóðri fiskisúpu fyrir hátíðargesti. Sjóminjasafnið opnar dyr sínar gestum að kostnaðarlausu og hægt er að versla þar ilmandi vöfflur með kaffinu.
Hoppland verður með tveggja hæða stökkpalla ásamt trampólíni við Reykjavíkurhöfn. Hægt verður að leigja blautbúning á staðnum og hoppa í sjóinn milli 12-16. Klukkan 16:00 byrjar síðan deathdive keppni þar sem keppendur sýna listir í einni hörðustu íþrótt landsins.
Tónlistin fær að venju stórt hlutverk á deginum. Á stóra sviðinu leikur harmonikumeistarinn Margrét Arnardóttir ljúfa tóna, leikararnir úr Versló-sýningunni Barbie flytja skemmtileg lög, Júlí og Dísa syngja nokkur af bestu lögum sínum og að lokum stígur Kristmundur Axel á svið.

BMX Brós mæta svo á svæðið með mögnuð hjólatrikk. Á Litla sviðinu gleðja Bjössi brunabangsi, Sólon, Húlladúllan og Árni Beinteinn og félagar yngstu gestina með Bestu lögum barnanna og fjörugri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Dagskrá sjómannadagsins 2026 má finna hér.
