Blaðið /
Þörungahrat notað til að varðveita matvæli
Marea er íslenskt fyrirtæki sem þróar lausnir til að varðveita gæði grænmetis og ávaxta og geta komið í staðinn fyrir plast. Þörungahrat er aðal efniviðurinn. Julie Encausse er ein af stofnendum Marea og framkvæmdastjóri fyrirtækisins og segir spennandi þróun fram undan þar sem unnið er að því að búa til náttúrulegt, ósýnilegt lag utan um grænmeti og ávexti sem dregur úr rakatapi, hægir á skemmdum og er fullkomlega öruggt til neyslu. Hér eru notuð náttúruleg efni á nýjan hátt til þess að varðveita matvæli.

Fyrirtæki á Íslandi stefna í auknum mæli að meiri sjálfbærni í framleiðslu og það á sannarlega við um mörg fyrirtæki í hafsækinni starfsemi. Marea hefur það að markmiði að þróa vörurnar sínar úr hliðarafurðum úr öðrum iðnaði og leita sífellt að möguleikum á því að skapa eitthvað nýtt úr því sem fellur til við framleiðslu og yrði annars hent. Umbúðalausnir Marea er skref í átt að snjallari og sjálfbærari matvælakerfum og ávinningur fyrir alla aðila.