Afþreying
Náttúruverndarstofnun
Allan daginn
Hátíðarsvæði
Náttúran í næsta nágrenni – bjargfuglar, friðlýst svæði og langvíu-tattú! Náttúruverndarstofnun verður með skemmtilegt fræðsluhorn á Sjómannadaginn þar sem gestir fá að kynnast bjargfuglum og friðlýstum svæðum á höfuðborgarsvæðinu. Landverðir verða á staðnum og segja gestum frá fjölbreyttum og frábærum friðlýstum svæðum í grennd við höfuðborgina — mörg hver við sjóinn, þar sem fjörur, vogar, eyjar, hraun og fuglalíf mynda einstaka náttúruupplifun rétt við borgarmörkin. Við kynnumst líka langvíunni, sjófugli sem verpur í stórum og mikilvægum fuglabjörgum á Íslandi. Fuglabjörgin tengja saman land og haf og þar mætast lífríki sjávar, klettar og fuglalíf. Mörg þessara bjarga eru friðlýst enda eru þau mikilvæg búsvæði og hluti af ríkri náttúru Íslands við sjóinn. Og það besta? Gestir geta fengið sér langvíu-tattú og tekið með sér smá sjófuglastemningu heim!
Náttúruverndarstofnun image

Upplýsingar um viðburðinn

Náttúruverndarstofnun verður í einu af hvítu tjöldunum á Sjómannadaginn frá kl: 11-17 þar sem landverðir taka vel á móti gestum og fræða um friðlýst svæði í grennd við höfuðborgina, sérstaklega þau sem tengjast sjónum og lífríki hans.

Fjórir landverðir munu deila með sér deginum og segja frá náttúruperlum við ströndina, fuglalífi, verndun og mikilvægu hlutverki friðlýstra svæða. Á staðnum verður einnig fræðslumyndband um langvíuna, gestir geta virt fyrir sér langvíuegg, fræðst um þennan skemmtilega sjófugl og fengið sér langvíu-tattú — sem er auðvitað ekki alvöru, bara fjör fyrir krakka og aðra fuglaáhugamenn!

Sjá kort af svæðinu
Preview

Meira spennandi