
Röst sjávarrannsóknarsetur er óhagnaðardrifið og sjálfstætt íslenskt félag sem stundar rannsóknir og eflir vísindalega þekkingu á hafinu með vönduðum og óháðum hafrannsóknum í innlendu og erlendu samstarfi. Hafrannsóknarfarið Súla markar nýtt skref í íslenskum hafrannsóknum, enda sjálfstýrð og hönnuð til að lágmarka rask á umhverfinu. Markmiðið er að auka þekkingu á lífríki hafsins, safna gögnum og gera þau aðgengileg til að styðja við upplýsta umræðu og ákvarðanatöku um málefni sjávar.
Röst verður með aðstöðu í hvítu tjöldunum við Grandagarð á sjómannadaginn, þar sem hægt verður að skoða Súlu.
„Okkar upphaflegu rannsóknir hafa farið fram í Hvalfirðinum í nánu samstarfi við Hafrannsóknastofnun,“ segir Birkir Bárðarson, forstöðumaður Rastar. „Þar höfum við stundað mjög ítarlegar rannsóknir bæði á ástandi hafsins og lífríkinu í firðinum. Það má í raun segja að Hvalfjörðurinn sé orðinn mest rannsakaði fjörður landsins. Við höfum komið okkur upp ómönnuðu rannsóknarfari sem við getum látið ferðast um yfirborð hafsins og safnað upplýsingum sem er í raun bylting í hafrannsóknum. Við sjáum það sem fyrsta skrefið í átt að markvissari, hagkvæmari og skilvirkari rannsóknum,“ segir Birkir.

Loftslagsbreytingar hafa víðtæk áhrif á allt umhverfi, ekki síst hafið. Röst hefur því beint sjónum sínum að rannsóknum á samspili sjávar og andrúmslofts, með sérstaka áherslu á bindingu koldíoxíðs sem veldur súrnun sjávar við núverandi aðstæður. „Við ákveðnar aðstæður getur hafið þó bundið koldíoxíð án þess að auka súrnun sjávar, jafnvel spornað gegn súrnun. Þetta eru hlutir sem við höfum hug á að skoða betur í framtíðinni,“ segir Birkir.
Öll gögn sem Röst safnar í rannsóknum sínum eru gerð aðgengileg með því markmiði að sem flestir geti nýtt þau til frekari þekkingar og rannsókna. „Við vitum að hafið í kringum okkur er að breytast, ekki síst við hér á Íslandi sem byggjum okkar viðurværi á hafinu. Mér finnst vera siðferðisleg skylda okkar, ekki bara á Íslandi heldur líka sem mannkyn, að vita betur hvað er að gerast í hafinu þannig að við getum þá vonandi stuðlað að betri ákvarðanatöku um málefni hafsins,“ segir Karen Björk Eyþórsdóttir, þróunar- og verkefnastjóri hjá Röst.

Röst sjávarrannsóknarsetur frumsýnir nýja hátæknihafrannsóknafarið Súlu á Reykjavíkurhöfn á sjómannadaginn. Þar geta gestir séð hvernig mælitæki hennar virka og hvaða möguleika slíkt rannsóknatæki geta opnað við hafrannsóknir við Ísland. Röst verður með aðstöðu í hvítu tjöldunum við Grandagarð.
