Sýning
Röst sýnir nýtt sjálfvirkt hafrannsóknafar
Allan daginn
Hátíðarsvæði
Röst sjávarrannsóknasetur er óhagnaðardrifið og sjálfstætt íslenskt rannsóknasetur. Við eflum rannsóknir og vísindalega þekkingu á hafinu með því að stunda og stuðla að vönduðum og óháðum hafrannsóknum í innlendu og erlendu samstarfi.
Við erum búin að byggja upp allskyns sérhannaða innviði og tæki fyrir hafrannsóknir á Íslandi og vorum t.d. að fá til landsins hátæknihafrannsóknafar af fullkomnustu gerð, hana Súlu, sem má segja að marki upphaf nýs tímabils í hafrannsóknum við Ísland.
Ástand hafsins er að breytast og við viljum kortleggja og skilja betur hvað er að gerast, en mikil umræða hefur t.d. verið í kringum Veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) og hvaða áhrif mögulegar breytingar á því kerfi hefðu á Íslandi.

Upphaf nýs tímabils í hafrannsóknum á Íslandi: Röst sjávarrannsóknasetur mun sýna gestum og gangandi hluta af nýjum hafrannsóknabúnaði sínum og verður nýtt hátæknihafrannsóknafar Rastar, Súla, frumsýnt við hvítu tjöldin á Grandagarði. Þar má sjá hvaða hátæknimælitækjum Súla er útbúin og hvers konar gögnum hún getur nú safnað um ástand hafsins.




