Tónlist
Barbie atriði frá Verslunarskólanum
13:40-14:00
Stóra sviðið
Í vetur sló Barbie-sýning Verlsó í gegn með litríkri tónlist, dansi og skemmtilegri sviðsframkomu. Nú gefst gestum Sjómannadagsins tækifæri til að njóta brots af þessari vinsælu sýningu þegar leikhópurinn stígur á stóra sviðið og færir okkur gleði, fjör og ógleymanlega stemningu.

Barbie og vinir hennar mæta á stóra sviðið með valin atriði úr hinni vinsælu Barbie-sýningu sem heillaði áhorfendur í vetur. Þar má búast við líflegum söng, glæsilegum dansatriðum og litríkri skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Sýningin er full af jákvæðri orku, húmor og tónlist sem fær bæði börn og fullorðna til að taka undir og njóta stundarinnar saman.




