Annað
Heiðrun sjómanna í Hörpu
14:00-15:00
Utan svæðis

Hátíðleg athöfn til heiðurs íslenskum sjómönnum fer fram í Hörpu sunnudaginn 7. Júní kl. 14:00, í tilefni af Sjómannadeginum 2026.
Gerður G. Bjarklind verður kynnir viðburðarins, sem er helgaður þeim sem starfað hafa við sjómennsku og hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins með störfum sínum á hafi úti.
Karlakórinn Fóstbræður syngur við athöfnina og Lúðrasveit Reykjavíkur leikur við hátíðlega stund.
Einnig flytja ávörp:
- Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra,
- Halldór Benóný Nellet, fyrverandi skipherra á varðskipinu Þór,
- og Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs.




