Logo
Annað
Minningaröldur
10:00-11:00
Utan svæðis
Minningaröldur image

Á Sjómannadaginn, sunnudaginn 1. júní 2025, fer fram hátíðleg minningarathöfn við Minningaröldur sjómannadagsins í Fossvogskirkjugarði kl. 10:00. Þessi athöfn er helguð minningu þeirra sjómanna og sæfarenda sem hafa farist á hafi úti og ekki fundist eða komist í vígða mold

Minningaröldurnar, sem vígðar voru árið 1996, eru úr tilsöguðum grásteini og mynda fjórar öldur. Á sléttum flötum þeirra eru skráð nöfn týndra sjómanna og sæfarenda, sem hlotið hafa hina votu gröf. Við hlið þeirra stendur Minnisvarði óþekkta sjómannsins, sem var reistur árið 1938

Athöfnin er opin öllum sem vilja heiðra minningu þeirra sem hafa farist á sjó og sýna samhug með aðstandendum þeirra.

Sjá kort af svæðinu
Preview

Meira spennandi