Logo
Sjókastið
#22 Sigurður Jökull – talsmaður skemmtiferðaskipa
Skemmtiferðaskipin eru eitt umdeildasta mál íslenskrar ferðaþjónustu. Gullnáma eða ágangur? Í þessum þætti af Sjókastinu ræðum við við Sigurð Jökul, lobbyista skemmtiferðaskipabransans á Íslandi. Við förum yfir stærð greinarinnar, efnahagsleg áhrif, álag á hafnir og samfélög – og spyrjum stóru spurninganna um ábyrgð, umhverfi og siðferði. Hversu miklu skila skemmtiferðaskipin raunverulega til þjóðarinnar? Eru hafnir og innviðir að bera kostnaðinn? Hvað með kolefnisspor skipanna og loftgæði í höfnum? Beint samtal um hagsmuni, reglur, gagnrýni og framtíð skemmtiferðaskipa við Íslandsstrendur.
#22 Sigurður Jökull – talsmaður skemmtiferðaskipa image