Logo
Sjókastið
#24 Gaui „Smái“ Hafsteinn – stökk í ískaldan sjó til að bjarga flugmanni
Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með sjómanninum Guðjóni Hafsteini Guðmundssyni, eða Gauja smáa, sem byrjaði aðeins 14 ára gamall til sjós og á að baki nær fjörutíu ára feril á íslenskum togurum. Guðjón segir frá fyrstu ferðinni sem messagutti á Gullfossi, lífinu á síðutogurunum, hvernig menn gátu farið þrisvar á kaf á einni vakt, og þeirri miklu byltingu sem varð þegar skuttogararnir komu til sögunnar. Í þættinum rifjar hann einnig upp magnað björgunarafrek á togaranum Vigra, þegar lítil flugvél hrapaði í sjóinn. Í þriggja stiga kulda batt hann kaðal um sig, stökk í sjóinn og synti að flugmanninum til að bjarga lífi hans. Við ræðum líka fjölskylduna, bakland sjómannsins, missi og nýtt lífsskeið, og hvað það er sem raunverulega gerir mann að góðum sjómanni. Þetta er saga um hugrekki, sjómennsku og líf sem mótaðist af hafinu.
#24 Gaui „Smái“ Hafsteinn – stökk í ískaldan sjó til að bjarga flugmanni image

Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með sjómanninum Guðjóni Hafsteini Guðmundssyni, eða Gauja smáa, sem byrjaði aðeins 14 ára gamall til sjós og á að baki nær fjörutíu ára feril á íslenskum togurum.

Sjókastið