Sýning
Gullfiskur á Sjómannadaginn
Allan daginn
Hátíðarsvæði
Harðfiskur hefur verið hluti af íslenskri matarmenningu í aldir og er ein elsta matvælaframleiðsla á Íslandi, með uppruna allt aftur til landnáms árið 874. Þrátt fyrir langa sögu hefur harðfiskur sjaldan notið meiri vinsælda en einmitt nú, þegar sífellt fleiri leita að hreinum, náttúrulegum og próteinríkum mat án óþarfa aukaefna. Hann er því enn í dag eitt hollasta og próteinríkasta snarl sem völ er á.
Gullfiskur á Sjómannadaginn image

Í tjaldi Gullfisks geta gestir fræðst um framleiðslu eins vinsælasta harðfisk landsins og keypt beint frá framleiðanda.

Gestum gefst jafnframt einstakt tækifæri til að smakka splunkunýja vöru í þróun frá Gullfiski þar sem próteinríkir harðfiskbitar og súkkulaði mætast á óvæntan og spennandi hátt.

Hvort sem þú ert harðfiskunnandi eða einfaldlega forvitin/n um eitt elsta og hollasta snarl landsins, þá ertu velkomin/n í heimsókn í tjald Gullfisks.

Sjá kort af svæðinu
Preview

Meira spennandi