Sýning
Húlla Dúlla
14:30-14:50
Litla sviðið

Húlladúllan mætir á litla sviðið með fjöruga og skemmtilega sýningu fyrir alla fjölskylduna. Á dagskrá eru glens og gaman, töfrabrögð, glæsilegt húllaatriði og skemmtilegar áskoranir þar sem hugrakkir áhorfendur fá tækifæri til að spreyta sig á húllaþrautum.
Að sýningu lokinni býður Húlladúllan gestum að taka þátt í húllafjöri þar sem hægt er að læra skemmtileg sirkustrix og prófa húllahringi af öllum stærðum – þar á meðal risastóra tröllahringi sem vekja alltaf mikla lukku hjá bæði börnum og fullorðnum.




