Tónlist
Margrét Arnadóttir Harmonikka
13:00-13:30
Stóra sviðið
Margrét Arnardóttir er einn fremsti harmonikkuleikari landsins og hefur um árabil komið fram við fjölbreytt tækifæri, allt frá tónleikum og leikhúsverkefnum til hátíða og mannamóta. Hún er þekkt fyrir einstakan hljóm, líflega sviðsframkomu og hæfileika til að flytja tónlist af einlægni og gleði.

Margrét setur hátíðlegan og notalegan tón á Sjómannadaginn þegar hún stígur fyrst á stóra sviðið og býður gestum upp á fallega harmonikkutóna sem henta vel í hátíðarstemninguna.




