Logo
Sýning
Shjówmenn- Hringleikur
13:00-16:00
Hátíðarsvæði
Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira. Þeir eru áhafnarmenn; hálfdrættingar, samt fullir af áhuga, en vandamálið blasir við þeim þegar ekki er hægt að sammælast um hvert skal haldið. Shjówmenn er ferðavæn nýsirkussýning fyrir börn á öllum aldri sem kafar í heim sjómennskunnar. Sýningin speglar fegurð úthafsins, einmanaleika túranna og húmor sjómannslífsins, dregin upp með leikgleði sirkuslistanna.
Shjówmenn- Hringleikur image

Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í ráfandi nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna.

Sjá kort af svæðinu
Preview

Meira spennandi