Sýning
Veraldarvinir – Saga, samfélag og hafið
Allan daginn
Hátíðarsvæði
Kynntu þér starf Veraldarvina í gegnum árin og fræðstu um mikilvægi hreinna hafa. Í Verbúðinni við Grandagarð verður boðið upp á áhugaverðar sýningar um sögu félagsins og áhrif plastmengunar á lífríki sjávar.
Veraldarvinir – Saga, samfélag og hafið image

Veraldarvinir (Worldwide Friends) taka þátt í Sjómannadeginum og bjóða gesti velkomna í Verbúðina sína við Grandagarð. Þar verður sýning sem segir frá sögu Veraldarvina og því starfi sem félagið hefur unnið í gegnum árin til að efla vináttu, menningarskipti og samfélagsþátttöku.

Einnig verður fræðandi sýning um plastmengun í hafi og áhrif hennar á lífríki sjávar. Gestir á öllum aldri eru hvattir til að kíkja við, fræðast og taka þátt í umræðunni um verndun hafsins og mikilvægi hreinna hafsvæða fyrir komandi kynslóðir.

Sjá kort af svæðinu
Preview

Meira spennandi